Vill bara minna á kökulínuna sem er í gangi núna, öll börn sem eiga að selja eiga að vera komin með bækurnar heim og vonandi byrjuð að selja :), það á svo að skila kökum á sunnudaginn 8 febrúar. kl:13:30 að Skólagötu 10, ef eitthvað er óljóst þá hafið samband við Önnu Kötu í síma 869-1375
Kökubasar er svo hjá utanlandsförum 12 ára og eldri: Samkaup föstudaginn 6. febrúar Það á að mæta með kökur í Samkaup kl. 15:00 Þeir sem við viljum biðja að afgreiða núna eru : Sara Elena Melkorka Andrea Þórir.
Á föstudaginn verður pizzapartý hjá gullhóp og munum við fá heimsókn frá sundkrökkum frá Bolungarvík. Er þetta liður í að efla félagslíf hjá báðum félögum. Partýið verður í Skólagötu 10 og verður frá kl 18:30-20:30. Krakkarnir eiga að mæta með 600kr.
Pizzapartý blárra verður svo á laugardaginn frá kl 15:00-17:00 og munu Bolvíkingar einnig vera með okkur þá, kostnaður einnig 600kr.
Framundan er svo gullmót Kr dagana 13-15 febrúar (sjá upplýsingar á heimasíðu okkar) gott væri ef foreldrar gætu látið mig vita sem allra fyrst hvort börnin ætla að fara á þetta mót með því að hringja í mig eða senda mér sms í allra síðasta lagi á laugardag.
kv, Benni
F.h er ferð suður til Rvk hjá bláum og gullhóp þann 13-15 febrúar n.k á Gullmót Kr og munum við senda út upplýsingar um þá ferð fljótlega. Ég vonast til þess að við fjölmennum á þetta mót og verðum bæjarfélaginu, Sundfélaginu og okkur sjálfum til sóma. Það hafa verið erfiðar æfingar undanfarnar vikur og mikill hugur í okkur.
Laugardalslaug , 13.-15 . febrúar 2009
Almennar upplýsingar
Gullmót KR 2009 fer fram í Laugardalslaug i 50 m brautum. Mótið er að miklu byggt á Unglingamóti KR sem haldið var i 22 skipti i Sundhöllinni við Barónsstig og naut afar mikilla vinsælda öll þessi ár. 5. Gullmót KR er opið öllum aldursflokkum þar sem keppt er i 82 greinum í 6 mótshlutum, auk KR Super Challenge á laugardagskvöldi. Eins og áður verður keppendum boðið uppá góða gistingu og mat í Laugalækjarskóla meðan á mótinu stendur. .
Fjöldi keppenda
Gert er ráð fyrir um 400- 450 keppendum á mótið frá um 25 sundféögum.
KR Super Challenge, 100.000 kr verðlaunafé -happdrætti Á laugardagkvöldinu fer fram keppnin KR SUPER CHALLENGE 50 m. þar sem tónlist, sund, skemmtun og ljósagangur verða í aðalhlutverki. Keppt verður í 50 metra flugsundi 8 karlar og 8 konur með úrsláttarfyrirkomulagi. Undanrásir fara fram á föstudagskvöldinu þar sem þeir 8 bestu öðlast þátttökurétt á KR SC. kvöldið. Í fyrsta riðli keppir fyrsti maður við þann áttunda. Annar við þann sjöunda og svo framvegis. Peningaverðlaun verða veitt fyrir 1. og 2. sætið.
Aukasund á KR SC
8 bestu telpurnar og drengirnir og 8 bestu sveinarnir og meyjaranar keppa einnig til úrslita í einum úrslitariðli um kvöldið. Undanrásir fara fram á föstudagskvöldinu
Frír aðgangur er inn á KR SC mótið á laugardagskvöldinu.
Verðlaunaveitingar / verðlaunafé
Keppt verður í 82 greinum í aldursflokkunum 10- 12 ára 13- 14 ára 15 ára og eldri, verðlaun verða veitt fyrir 1. 2. og 3. sæti í öllum greinum, auk þess fá allir hnokkar og hnátur þátttökuverðlaun. Einnig verða greidd sérstök verðlaun fyrir landsmet og fyrsta mótsmet sundmanns sem sett verða á mótinu.
Greinar
Á föstudag verður keppt í opnum flokki í öllum 50 metra greinum og auk þess 800 m. skrið kvenna og 1500 m skrið karla. Synt verður í 50 metra braut alla mótshelgina. Á mótinu verður ræst yfir höfuð.
Hér er hægt að nálgast þær greinar sem verða synntar á mótinu ásamt áætlun á tímasetningu mótshluta.
Athugið að piltar og stúlkur (f. 1992, 1993 og 1994) keppa í opnum flokki karla og kvenna.
Áætlaðar tímasetningar einstakra mótshluta.
Áætlanir.
13. ferbrúar.
1. mótshluti upphitun kl. 15.30 keppni 16.30 - 20.00 Opinn flokkur.
14. febrúar.
2. mótshluti upphitun kl. 7.30 keppni kl 8.30 - 11.45 13 ára og eldri.
3. mótshluti upphitun kl. 12.00 keppni kl. 13.00 - 15.00 12 ára og yngri.
4. mótshluti upphitun kl. 15.00 keppni kl. 16.15 - 18.15 13 ára og eldri.
KR Super Challenge kl. 19.30 - 21.00 Úrslitasund frá föstudagskvöldi.
15. febrúar i 50 m flugsundi
5. mótshluti upphitun kl. 8.00 keppni kl. 9.00 - 12.15 13 ára og eldri
6. mótshluti upphitun kl. 13.00 keppni kl. 14.00 - 17.00 12 ára og yngri
Aldur miðast við fæðingarár keppanda
ATH: Mótanefnd áskilur sér rétt til að takmarka þátttöku í einstaka mótshluta þannig að tímaáætlanir mótsins geti staðist. Tímanlegar skráningar geta gefið forgang inn á mótið.
Stigakeppni
Skráningar
Stigakeppni sundfélagaÉg vill þakka fyrir góð skil á kökum í gær þetta tókst mjög vel. Þeir sem eiga ósótta kökudiska geta nálgast þá hjá Bessu í Stjórnsýsluhúsinu (Svæðisskrifstofu fatlaðra)
NánarEitthvað hefur verið um það að við höfum fengið póst út af búningum til baka, ef einhver sem búin var að panta búninga á eftir að fá póst endilega hafið samband við Möggu í síma 863-4721 eða Sveinu í síma 869-5874. Það getur vel verið að hægt sé að redda fleiri búningum ef einhverjum vantar, hafið bara sambandi við Möggu og við sjáum hvað við getum gert.
kv.
Magga