Hið árlega Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ sem fram fer þann 20. júní næstkomandi, á merkisafmæli í ár því 20 ár eru liðin frá því fyrsta hlaupið fór fram. Að þessu sinni er hlaupið í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands. Þemað í ár er „Tökum þátt - Heilsunnar vegna" og er ætlað að vekja athygli á mikilvægi forvarna í heilbrigðu líferni og að minna konur á mikilvægi þess að fara reglulega í skoðun hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins
Hlaupið verður frá Íþróttahúsinu Torfnesi kl: 11:00. Vegalengdir í boði: 3 km - 5 km og 7 km.
Frítt í allar sundlaugar í Ísafjarðarbæ að loknu hlaupi.
Forskráning er í versluninni Jóni og Gunnu, á skrifstofu Sjóvá og í versluninni Hlíf.
Föstudaginn 19.júní frá kl.17:00-18:30 munum við vera með forskráningu í Verslunarmiðstöðinni Neista og í Bónus á Skeiði.
Nánar
Jæja - þá er blakið búið í vetur hjá krökkunum. Slúttað var í strandblaki í blíðskaparveðri á Þingeyri á Uppstigningardag. Þar voru samankomnir krakkar frá Ísafirði, Suðureyri og Þingeyri, um það bil 50 blakarar. Haldið var fjörugt strandblakmót þar sem keppt var á mismunandi stigum í fjögurra manna liðum. Krakkarnir skemmtu sér vel og eiga greinilega auðveldara með að hreyfa sig í sandinum en fullorðna fólkið og ekki verra að geta leikið sér í sandinum á milli leikja. Eftir mótið voru grillaðar pylsur á Víkingasvæðinu og skelltu flestir sér í sund í lokin. Við vonumst til að sjá alla hressa og káta næsta haust. Það er líka tilvalið að grípa í blakbolta í sumar og strandblaksvæðið á Þingeyri er frábært útivistarsvæði fyrir alla fjölskylduna.
Fleiri myndir frá slúttinu eru komnar inn á myndasíðuna.
Þá er komið að því að enda blakvertíðina hjá krökkunum. Slúttið fer fram á Þingeyri á Uppstigningardag, fimmtudaginn 21. maí. Farið verður á einkabílum og lagt af stað frá íþróttahúsinu Torfnesi klukkan 10. Dagskráin verður eftirfarandi:
11-12:30 Strandblakmót hjá krökkunum
12-13 Grillaðar pylsur á Víkingasvæðinu
13-14 Sund fyrir þá sem vilja
NánarBlakfélagið Skellur gerði ljómandi góða ferð á Íslandsmót öldunga í blaki sem haldið var á Seyðisfirði og Egilsstöðum um helgina. Mótið var hið fjölmennasta frá upphafi en 108 lið voru skráð til leiks. A lið kvenna spilaði gott blak svo að eftir var tekið og vann sigur í sinni deild. Þær munu því spila í 5. deild að ári. B liði kvenna gekk ekki eins vel og féllu þær niður í 8. deild, þrátt fyrir mjög góð tilþrif inn á milli.
Karlalið Skells náði glæsilegum árangri og lenti í 2. sæti í sinni deild og færist því upp í 4. deild. Lið Rassskells sem er sameinað lið Tálknfirðinga og Ísfirðinga stóð undir nafni og ýmist rassskellti önnur lið eða lét rassskella sig og endaði um miðja deildina. Úrslitin í heild sinni má sjá hér: http://blak.is/default.asp?page=upplvefur/lokastada.asp
Liðin fengu hús á Seyðisfirði og kvennaliðin gistu í einu húsi og karlaliðin í öðru skammt frá og var göngustígur á milli. Karlarnir voru svo sætir að bjóða konunum í ljúffengan mat á föstudagskvöldinu (alveg óvænt). Eftir það var haldið á Karaoke keppnina þar sem liðin okkar voru með tvö frábær atriði - annað diskó en hitt pönk. Konurnar buðu síðan körlunum í veislu fyrir lokahófið á laugardagskvöldinu og voru þá haldnar ræður, farið yfir atburði mótsins og ýmsar viðurkenningar veittar. Gífurleg stemmning var á lokahófinu eins og alltaf, enda vita allir blakarar að viðlíka stemmning fyrirfinnst hvergi annars staðar.
Það voru þreyttir og sælir blakarar sem lentu á Ísafjarðarflugvelli á sunnudag. Sumir voru komnir heim en aðrir áttu eftir að keyra mislangt. Næsta verkefni verður síðan landsmót UMFÍ sem haldið verður á Akureyri í júli, en stefnt er á að senda blaklið karla og kvenna frá HSV.
Nánar
Þá er komið að því. Stundin sem við höfum beðið eftir frá því á síðasta öldungamóti á Ísafirði í fyrra. Skellur er á leið á öldungamót á Seyðisfirði og Egilsstöðum - Húrraaaa!
Flogið verður í hádeginu á morgun miðvikudegi, millilent í Reykjavík og lent á Egilsstöðum um klukkan 15. Við förum með tvö kvennalið og tvö karlalið héðan frá Vestfjörðum. Þar sem Tálknfirðingarnir voru ekki með nægan mannskap í eitt lið og við ekki í tvö lið, var ákveðið að blanda saman liðunum. Karlarnir fara því með eitt Skells-lið sem er skipað Ísfirðingum og Súgfirðingum og eitt lið sem fékk hið lýsandi nafn "Rassskellur". Í því eru fjórir Tálknfirðingar og þrír Ísfirðingar. Konurnar fara með liðin Skellur A og Skellur B sem spila í 6. og 7. deild. Í liðunum eru Ísfirðingar, Þingeyringar, Súgfirðingur og Tálknfirðingur - góð blanda!
NánarBlakfélagið Skellur sendi eitt lið á Íslandsmót yngriflokka í blaki á Akureyri um síðustu helgi. Það voru þau Alexander, Regína, Daði og Lena sem spiluðu í 4. flokki stig 5, en þá er spilað venjulegt blak með fullorðinsbolta.
Spilaðir voru fjórir leikir á laugardeginum og tveir á sunnudeginum, þetta er fyrsta alvöru mótið sem krakkarnir fara á og stóðu þau sig mjög vel. Þarna voru 74 lið að keppa allsstaðar að af landinu og mikið fjör í húsinu.
Ferðasöguna frá mótinu er hægt að skoða undir tenglinum: krakkablak eða með því að smella hér
Hér að neðan er ferðasaga ótrúlega duglegra blakkrakka sem fóru í ævintýraferð til Ólafsvíkur:
Föstudagur:
Lagt var af stað um klukkan 13:30 frá íþróttahúsinu Torfnesi. Bílstjóri var Friðfinnur frá Þingeyri og var setið í öllum sætum í 25 manna rútunni. Stoppað var einu sinni við eyðibýli í Djúpinu til að pissa - og kom þá í ljós að stelpur nú til dags kunna ekki að pissa úti :-) En eftir smá vangaveltur og nokkrar tilraunir tókst þetta hjá flestum. Stoppað var í sjoppunum á Hólmavík og í Búðardal. Ferðin var löng, milli 8 og 9 klukkustundir, en bíómyndir styttu okkur stundir á leiðinni og var Ívar Tumi tæknimaður ferðarinnar.
NánarFriðfinnur er búinn að fá bróður sinn til að skutlast með sig á snjóbílnum að sækja farangurinn í rútuna. Það er ekki hægt að fara í það alveg strax, en vonandi í dag fyrir myrkur. Friðfinnur mun síðan koma farangrinum hingað í íþróttahúsið á Torfnesi. Þetta ætti því vonandi að verða komið í kvöld, en við munum senda SMS þegar það gerist.
Kveðja,
Harpa
Nánar