Liðin helgi var óvenju slæm hjá vestfirskum tippurum. Einn var með 10 rétta og þeir næstu með 8 rétta. Hampiðjan náði 10 réttum sem skiluðu þeim kr. 6.800 í vinning. HG og Skúrinn náðu ekki nema 8 réttum
Þetta þýðir að Hampiðjumenn eru komnir með tveggja stiga forystu á toppnum á HG. Skúrverjar koma svo einu stigi þar á eftir.
Villi Matt stendur sig enn best í einstaklingskeppninni, heldur þriggja stiga forystu á næsta mann og ekki nema þremur stigum á eftir Skúrnum nú þegar búið er að henda út einni röð
Annars má sjá stöðuna í leiknum og árangur keppenda hér
Stóri pottur náði ekki nema 8 réttum sem skilaði akkúrat engu. Hampiðjumenn munu stýra næsta potti, greinilega mun getspakari en hinir meintu sérfræðingar. Reyndar var síðasti seðill afurð lýðræðis, menn komust að sameiginlegri niðurstöðu sem skilaði þessari líka slæmu niðurstöðu.
Næsti seðill snúinn venju samkvæmt, fjórir leikir úr efstu deild, átta úr þeirri næstu og einn úr C deildinni, seðilinn má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í Skúrnum á laugardaginn frá 12 - 13.30 að taka við röðum.
Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra
Enski boltinn verður í beinni hjá Dóra, sjá hér á síðu Símans hvað verður í boði.
NánarLiðin helgi var snúin. Stórliðin náðu 10 réttum nema hvað Skúinn náði ekki nema 9 og er því einu stigi á eftir HG og Hampiðjunni í toppbaráttunni.
Gísli Jón Hjaltason og Magnús Bjarnason stóðu sig manna bestu og náðu báðir 11 réttum sem skilaði Magnúsi tæpum 15.000 í vinningsfé og Gísla kr. 10.000, Maggi var með tvær raðir með 11 réttum og fleiri tíur en Gísli, vel gert Maggi. Hér fara menn sem hafa greinilega vita á alþjóðaboltanum.
Villi Matt stendur sig best í einstaklingskeppninni, kominn með þriggja stiga forystu á næsta mann og ekki nema þremur stigum á eftir Skúrnum.
Annars má sjá stöðuna í leiknum og árangur keppenda hér
Stóri pottur náði einnig 11 réttum sem skiluðu ekki nema kr. 4.500 í vinning, styttist í þann stóra.
Næsti seðill snúinn venju samkvæmt, sexleikir úr efstu deild og sjó úr þeirri næstu, seðilinn má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í Skúrnum á laugardaginn frá 12 - 13.30 að taka við röðum. Ath! Nú er kominn vetrartími í Englandi og því færist allt aftur um eina klst.
Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra
Enski boltinn verður í beinni hjá Dóra, sjá hér á síðu Símans hvað verður í boði.
NánarVestfirskir tipparar stóðu sig ekki vel um liðna helgi. Einn tippari náði 9 réttum og það var Sammi sem greinilega hefur vit á fótbolta. Sammi spilar fyrir Team Skúrinn sem þýðir að Skúrinn jafnar við HG og Hampiðjuna á toppnum. Öll stórliðin með 72 stig á toppnum en Hampiðjan er í forystu með einu tólfu tímabilsins. Ekkert fékkst fyrir 9 rétta þannig að enginn í getraunaleiknum náði vinningi þessa vikuna.
Annars má sjá stöðuna í leiknum og árangur keppenda má hér
Stóri pottur náði hins vegar10 réttum sem skiluðu kr. 8.880 í vinning, vorum með 2 leiki ranga og kerfið hélt ekki, missti einn leik, gengur betur næst.
Næsti seðill er mjög snúinn, landsleikjaseðill, seðilinn má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í Skúrnum á laugardaginn frá 12 - 13.30 að taka við röðum. Ath! Nú er kominn vetrartími í Englandi og því færist allt aftur um eina klst.
Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra
Nánar
Spennan helst á toppnum, allt í járnum. Hampiðjan og Team HG náðu 10 réttum á meðn Skúrinn náði ekki nema 9. Þetta þýðir að Skúrinn fellur niður í þriðja sæti, einu stigi á eftir sínum helstu keppinautum.
Villi Matt stendur sig best í einstaklingskeppninni, náði 10 réttum og er ekki nema þremur stigum á eftir stórliðunum. 10 réttir skiluðu kr. 860 í vinning.
Stöðuna í leiknum og árangur keppenda má sjá hér
Stóri pottur náði einnig 10 réttum sem skiluðu kr. 1.720 í vinning, flöskuðum á nokkrum leikjum, gengur betur næst.
Næsti seðill snúinn venju samkvæmt, þrír leikir úr efstu deild og 10 úr þeirri næstu, seðilinn má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í Skúrnum á laugardaginn frá 12 - 13.30 að taka við röðum. Ath! Nú er kominn vetrartími í Englandi og því færist allt aftur um eina klst.
Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra
Enski boltinn verður í beinni hjá Dóra, sjá hér á síðu Símans hvað verður í boði.
NánarHampiðjan gaf heldur betur eftir á toppnum, náðu ekki nema 9 réttum á meðan þeirra helstu samkeppnisaðilar náðu 11 réttum. Þetta þýðir að Hampiðjan, HG og Team Skúrinn eru öll jöfn á toppnum með 54 stig. Hákon Hermannson náði 11 réttm fyrir hönd Hússins sem skilaði honum kr. 7.620 vinning. Ingólfur Þorleifs náði einnig 11 réttum, vel gert Ingólfur en 11 réttir skiluðu honum kr. 4.560.
Stöðuna í leiknum og árangur keppenda má sjá hér
Stóri pottur náði einnig 11 réttum og fullt af 10 réttum sem skilaði okkur samtals kr. 37.000 vinning. Vorum með 12 rétta en kerfið hélt ekki, vorum bara með Everton Watford rangan, var samt tvítryggður.
Næsti seðill snúinn venju samkvæmt, einir 8 leikir úr efstu deild og 5 úr þeirri næstu, seðilinn má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í Skúrnum á laugardaginn frá 11 - 12.30 að taka við röðum.
Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra
Enski boltinn verður í beinni hjá Dóra, sjá hér á síðu Símans hvað verður í boði.
NánarStórliðin þrjú náðu öll 11 réttum um liðna helgi og því er staðan á toppnum óbreytt. Sigrún Sigvalda gaf stórliðunum ekkert eftir og náði einnig 11 réttum.
Þetta þýðir að Hampiðjan heldur tveggja stiga forystu á Skúrinn og HG. Aðrir dragast aftur úr nema Sigrún. Stöðuna í leiknum og árangur keppenda má sjá hér
Stóri pottur náði hins vegar 12 réttum sem skilaði kr. 13.420 í vinning. Kerfið hélt, við flöskuðum á einum leik. Luton tók upp á því að vinna Millwall úti.
Næsti seðill snúinn venju samkvæmt, einir 8 leikir úr efstu deild og 5 úr þeirri næstu, seðilinn má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í Skúrnum á laugardaginn frá 11 - 12.30 að taka við röðum.
Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra
Enski boltinn verður í beinni hjá Dóra, sjá hér á síðu Símans hvað verður í boði.
NánarHampiðjumenn náðu 12 réttum í viku þrjú á meðan þeirra helstu keppinautar náðu ekki nema 11 réttum. 12 réttir skiluðu þeim Hampiðjumönnum kr. 8.300 í vinning.
Þetta þýðir að þeir sitja á toppnum með tveggja stiga forskot á Skúrinn og HG. Einu stigi þar á eftir sitja efstu menn í einstaklingsflokki, þeir Villi Matt og Guðni en hann náði einmitt 12 réttum líkt og Hampiðjan, annars má sjá stöðuna í leiknum og árangur allra hér
Stóri seðillinn náði einnig 12 réttum. Að þessu sinni hélt kerfið en vorum með Ungverjaland-Albanía rangan, 12 réttir skiluðu ekki nema kr. 5.860 í vinning, gengur betur næst.
Næsti seðill snúinn venju samkvæmt, einir 8 leikir úr efstu deild og 5 úr þeirri næstu, seðilinn má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í Skúrnum á laugardaginn frá 11 - 12.30 að taka við röðum.
Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra
Enski boltinn verður í beinni hjá Dóra, sjá hér á síðu Símans hvað verður í boði.
NánarHampiðjumenn sitja einir á toppnum eftir tvær vikur.
Í viku tvö náðu Hampiðjumenn 11 réttum og sitja með eins stigs forystu á toppnum
Annars stóð Frank Guðmundsson sig manna best og náði 12 réttum sem skilaði honum kr. 25.150 í vinning, vel gert á 4.000 kr. miða. Stöðuna í leiknum og árangur allra má sjá hér
Stóri seðillinn náði einnig 12 réttum, vorum hársbreidd frá 13 réttum, áttum nokkra möguleika á því. 12 réttir skiluðu kr. 157.000 í vinning sem er ágætis ávöxtun fyrir hluhafa.
Næsti seðill mjög snúinn, landsleikjahelgi. 8 landsleikir á seðlinum og 5 leikir úr sænsku deildinni, seðilinn má finna hér.
Nefndin verður á sínum stað í Skúrnum á laugardaginn frá 11 - 12.30 að taka við röðum.
Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra
Enginn enski bolti verður hjá Dóra um helgina en landsleikir verða sýndir, hér á síðu Stöð tvö sport má sjá hvað verður í boði
NánarÓvenjuleg staða er nuna eftir fyrstu vikuna í getraunaleiknum. Skúrverjar eru ekki efstir! Ansi langt síðan slík staða hefur sést.
Hampiðjumenn og Villi Matt stóðu sig best í viku eitt. Náðu 11 réttum, þrjú lið náðu 10 réttum, hér má sjá stöðuna í leiknum. 11 réttir skiluðu Hampiðjumönnum kr. 5.900 og Villa 3.100. Villi stóð sig reyndar betur þar sem hann var með töluvert minni miða en Hampiðjumenn, náði fyrir kostnaði og rúmlega það.
Næsti seðill snúinn, hann má finna hér. Boðið er upp á 5 leiki úr efstu deild og 8 úr þeirri næstu.
Nefndin verður á sínum stað í Skúrnum á laugardaginn frá 11 - 12.30 að taka við röðum.
Stóri pottur skilaði ekki mikilli uppskeru, náðum 11 réttum sem skilaði kr. 5.900 í vinning.
Minnum keppendur að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna. Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra.
Enski boltinn verður í beinni hjá Dóra, sjá hér á síðu Símans hvað verður í boði
NánarÞá er loksins komið að því. Getraunastarf Vestra hefst formlega með haustleik 2021. Leikum 14 vikur, 12 bestu vikurnar telja.
Húsið vann Vorleikinn með glæsibrag, lokastöðuna má finna hér. Nú þurfa tipparar að veita Skúrverjum samkeppni, skilst að Hampiðjumenn séu búnir að skipta inn öflugum liðsmönnum auk þess sem önnur lið hafa sinnt undirbúningi vel. Allar líkur á spennandi sísoni.
Stóri potturinn verður á sínum stað, hendum í stóran stóran pott, nýtum eitthvað af fríröðum okkar, allir velkomnir í stóra pottinn.
Fyrsta seðill má finna hér. Boðið er upp á 5 leiki úr efstu deild og 8 úr þeirri næstu.