Um síðustu helgi var haldið, í fyrsta sinn, ungmennaþing KSÍ. Þar komu saman um 60 ungmenni frá um 20 félögum.
Aðal umræðuefni þingsins voru tvö, hegðun foreldra á fótboltamótum og mótamál. Miklar umræður sköpuðust og margt var rætt.
Að sinni fór einn fulltrúi á þingi frá Vestra en það var hún Viktoría Rós Þórðardóttir. Viktoría hafði sjálf þetta að segja um þátttöku sína:
"Ég fékk tækfæri að fara sem fulltrúi Vestra á fyrsta ungmenna þing KSÍ fyrir 13-18 ára . Þar var eitt umræðuefnið um dónalega foreldra á mótum og hvað er hægt að gera, við krakkar fórum í hópa og ræddum hvað væri hægt að gera við því og allir hópar settu nokkra punkta á menti.com sem fer svo beint til KSÍ og munu þau vinna áfram með okkar punkta. Við vorum svo með tvo önnur umræðuefni og var það mótamál (rætt var um lotumót,hraðmót og helgarmót meðal annars) og annað (þar sem við máttum koma með eigin punkta um KSÍ). Þingið byrjað með að allir fengu gjafa poka sem innihélt KSÍ brúsa og bol.
Guðni forseti Íslands setti formlega þingið og hélt stutta ræðu og svo hélt formaður KSÍ hún Vanda ræðu líka. Við fengum heimsókn frá landslið fólki meðal annars Söndru markmanni íslenska landsliðsins og Elísu leikmann í íslenska landsliðsins og stráka frá U21 landsliðinu. Við fengum að skoða byggingu KSÍ og skoða búningsklefa, skrifstofu Vöndu og þjálfara herbergi. Í enda þingsins var dregið úr happdrætti sem fólk skráði sig í með að auglýsa þingið á instagram."
Það er mikilvægt fyrir Vestra að eiga fulltrúa á þingi sem þessu og vonumst við til að geta sent fleiri fulltrúa að ári. Þingið heppnaðist vel og var mikil ánægja með það. Það er frábært fyrir iðkendur að geta fengið að kynnast starfsemi Knattspyrnusambands Íslands betur og ekki skemmir það fyrir að fá að skoða aðstöðuna og hitta landsliðsfólkið okkar.
NánarStúlkurnar okkar í 6.flokk skelltu sér norður á Akureyri um helgina til að taka þátt í Goðamóti. Alls fóru stelpurnar 9, ásamt fríðu föruneyti foreldra, þjálfara og fararstjóra. Vestri sendi tvö lið til keppni og því var mikið spilað alla helgina.
Það er ekki að spyrja að því, en stelpurnar stóðu sig virkilega vel, bæði innan vallar og utan. Margar þeirra voru að fara í fyrsta skiptið á svona helgarmót og er þetta því mikil og skemmtileg upplifun.
Framtíðin er virkilega björt.
Áfram Vestri !
Nánar
Elvar Baldvins til liðs við Vestra. Aurélien Norest, Elmar Atli og Daníel Agnar framlengja.
NánarKnattspyrnudeild Vestra hefur ráðið Daniel Badu sem aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla Vestra.
NánarÁkveðið hefur verið að vera með opið í Vallarhúsinu miðvikudaginn 23. nóvember og fimmtudaginn 24. nóvember frá 10:00 - 15:00. Knattspyrnudeildin hefur hug á að hafa opið þarf oftar en hefur verið og fá þangað inn alla áhugasama í spjall og kaffisopa.
Spil og bækur á borðum, knattspyrnuleikir á skjám, heitt á könnunni og létt spjall.
Einnig er hægt að versla legghlífar og gripsokka, en félagið hóf nýlega sölu á þeim vörum. Frábærar vörur í jólapakkann fyrir íþróttafólkið okkar.
Allir velkomnir í heimsókn og spjall.
NánarÞriðjudaginn 22.nóvember verður opið í Vallarhúsinu frá 09:00 - 15:00. Þar verða knattpyrnuleikir sýndir á skjám, boðið upp á kaffi og létt spjall. Einnig er hægt að versla legghlífar og gripsokka, en félagið hóf nýlega sölu á þeim vörum. Frábærar vörur í jólapakkann fyrir íþróttafólkið okkar.
Allir velkomnir í heimsókn og spjall.
NánarUm liðna helgi bauð Heiðar Birnir Þorleifsson hjá Coerver Coaching upp á flott knattspyrnunámskeið fyrir iðkendur á aldrinum 6-13 ára.
Ótrúlegt að það sé ennþá hægt að vera úti við í fóbolta á þessum árstíma, en við tökum því fagnandi eins lengi og mögulegt er.
Við þökkum Heiðari Birni kærlega fyrir þetta frábæra námskeið.
NánarJako verður með tilboðsdag og sölu á Vestrafatnaði í anddyri íþróttahússins Torfnesi frá 16:00 til 19:00 mánudaginn 3. október.
NánarKnattspyrnudómaranámskeið verður haldið í Vallarhúsinu við Olísvöllinn á sunnudaginn, 18. september, klukkan 12:30. Öllum þeim sem hafa áhuga á dómgæslu eru velkomið að mæta á námskeiðið.
NánarPatrik Duda hefur verið valinn í Hæfileikamótun drengja hjá KSÍ dagana 14.-16. september. Æfingarnar fara fram í Miðgarði.
Við óskum Patrik til hamingju með valið!
Nánar