Fréttir - Knattspyrna

Vetrafrí og ársþing KSÍ

Knattspyrna | 16.02.2023

Vetrafrí yngri hófst núna í gær og stendur fram á sunnudag. Við vonum að allir hafi það gott í fríinu og mæti nedurnærð á æfingar eftur helgi. 

Ársþing KSÍ verður síðan haldið hérna á Ísafirði helgina 24-26 febrúar. Það er heilmikil dagskrá í kringum þingið. Þingið sjálft er svo á laugardeginum sem endar með kvöldverði og skemmtun.

Fimmtudaginn 23. Febrúar mun KSÍ bjóða upp á fyrirlestur sem ber heitið Einelti, samskipti og forvarnir. Fyrirlesari er Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, en Vanda hefur víðtæka þekkingu og reynslu af viðfangsefninu.

 

Fyrirlesturinn verður kl. 17:00-19:00 á efri hæð í Vallahúsi Vestra á Torfunesi. Frítt er á fyrirlesturinn.

 

Viðfangsefni:

Einelti og samskiptavandi

Jákvæðir og neikvæðir leiðtogar

Liðsandi

Foreldrasamskipti

 

Að námskeiðinu loknu eiga þátttakendur að vera komnir með góða innsýn í:

 

  1. Hvernig á að koma auga á, fyrirbyggja og taka á einelti og samskiptavanda í knattspyrnuliðum. 
  2. Hvernig hægt er að efla iðkendur sem jákvæða leiðtoga 
  3. Hvernig efla má liðsanda
  4. Hvernig stuðla má að jákvæðum foreldrasamskiptum

 

Þjálfarar með KSÍ/UEFA þjálfararéttindi fá 4 endurmenntunarstig fyrir að sitja fyrirlesturinn. KSÍ hvetur einnig fólk í stjórnum knattspyrnudeilda og barna- og unglingaráða til mæta á fyrirlesturinn .

 

Hér er skráningarlinkur á viðburðinn - https://forms.gle/19s8sBehfwSwcVtS8 



Nánar

Benedikt Warén aftur kominn vestur!

Knattspyrna | 29.01.2023

Benedikt Warén kemur aftur vestur!

Nánar

Ívar Breki framlengir!

Knattspyrna | 27.01.2023
Ívar Breki og Davíð Smári handsala samninginn
Ívar Breki og Davíð Smári handsala samninginn

Ívar Breki Helgason hefur framlengt samning sinn við Vestra um tvö ár.

Nánar

Deniz Yaldir framlengir við Vestra!

Knattspyrna | 20.01.2023

Deniz Yaldir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Vestra.

Nánar

Fatai Gbadamosi gengur til liðs við Vestra!

Knattspyrna | 03.01.2023

Vestri og Kórdrengir hafa náð samkomulagi um að félagsskipti Fatai Gbadamosi frá Kórdrengjum til Vestra.

Nánar

Opnunartími í Vallarhúsinu 14. 15. og 16. desember

Knattspyrna | 13.12.2022

Opið verður í Vallarhúsinu 14. - 16. desember frá klukkan 10:00 - 15:00. 

Við bjóðum upp á kaffi, piparkökur og súkkulaði, ýmis spil á borðum, PS5 tölva í salnum, jólapúsl o.fl. Allir velkomnir. 

Knattspyrnudeild Vestra hefur einnig til sölu Vestra varning ásamt legghlífum og gripsokkum sem henta sérstaklega vel í jólapakka fótboltabarna. 

 

Hafa má samband við Eyþór Bjarnason á eythor@vestri.is eða í síma 847-8113 ef einhverjar spurningar vakna.

Nánar

Pétur Bjarnason kveður Vestra

Knattspyrna | 07.12.2022
Pétur Bjarnason
Pétur Bjarnason

Pétur Bjarnason hefur ákveðið að söðla um og flytja til Reykjavíkur og mun því ekki leika með Vestra á næsta tímabil. Stjórn knattspyrnudeildar Vestra vill þakka Pétri fyrir öll þau góðu ár sem hann hefur leikið fyrir félagið og óskum við honum velfarnaðar hjá nýju félagi. Pétur hóf feril sinn árið 2014 þá aðeins 16 ára gamall og hefur leikið allan sinn feril fyrir vestan. Leikirnir eru orðnir 211 og mörkin 76 talsins. Gangi þér vel Pétur og takk fyrir allt!

Nánar

Varningur til sölu í Vallarhúsinu

Knattspyrna | 06.12.2022

Í dag er opið í Vallarhúsinu frá klukkan 16:00 til 18:00 þar sem hægt er að kaupa legghlífar og gripsokka fyrir fótboltakrakkana. 

Einnig er hægt að kaupa Vestra varning til að setja með í jólapakkann fyrir Vestra fólkið. Má þar nefna, Vestra kaffimál, bindisnælur, slaufur o.fl. 

Heitt á könnunni, leikur í sjónvarpinu og allir velkomnir :) 

Nánar

Heimsókn KSÍ í blíðskaparveðri 2. desember

Knattspyrna | 03.12.2022
1 af 4

Fulltrúar frá KSÍ komu vestur föstudaginn 2.desember til að taka út aðstæður fyrir ársþing KSÍ sem haldið verður á Ísafirði þann 25.febrúar 2023. 

Það er mikill heiður fyrir Vestra að fá ársþingið hingað vestur, en búist er við því að í kringum 200 manns komi á svæðið í tilefni þess. 

Fulltrúar KSÍ voru þau Klara Bjartmarz, Birkir Sveinsson og Ómar Smárason. Dagurinn byrjaði á því að skoða aðstæður á Hótel Ísafirði þar sem miklar endurbætur eru í gangi. Kristján Kristjánsson hótelstjóri tók á móti okkur og sýndi teikningar og framkvæmdirnar. Eftir það var farið í íþróttahúsið á Torfnesi, þar sem ársþingið verður haldið. Þar tók Hafdís Gunnarsdóttir, sviðstjóri skóla- og tómsundarsviðs Ísafjarðarbæjar á móti hópnum og fór yfir málin. 

Að lokum var farið gengið yfir knattspyrnusvæðið á Torfnesi og endað í Vallarhúsinu í rjúkandi kaffi og smákökum. 

Fyrir flug var síðan ákveðið að keyra upp á Seljalandsdal og sýna þeim frábæra útsýnið þar, en veðrið lék svo sannarlega við okkur þennan daginn. 

Við þökkum þeim kæralega fyrir heimsóknina og hlökkum til samstarfsins og heimsóknarinnar í febrúar n.k. Einnig þökkum við þeim sem tóku á móti okkur í þessari heimsókn, kærlega fyrir góðar móttökur. 

 

Nánar

Ungmennaþing KSÍ

Knattspyrna | 02.12.2022
1 af 3

Um síðustu helgi var haldið, í fyrsta sinn, ungmennaþing KSÍ. Þar komu saman um 60 ungmenni frá um 20 félögum. 

Aðal umræðuefni þingsins voru tvö, hegðun foreldra á fótboltamótum og mótamál. Miklar umræður sköpuðust og margt var rætt. 

Að sinni fór einn fulltrúi á þingi frá Vestra en það var hún Viktoría Rós Þórðardóttir. Viktoría hafði sjálf þetta að segja um þátttöku sína: 

"Ég fékk tækfæri að fara sem fulltrúi Vestra á fyrsta ungmenna þing KSÍ fyrir 13-18 ára . Þar var eitt umræðuefnið um dónalega foreldra á mótum og hvað er hægt að gera, við krakkar fórum í hópa og ræddum hvað væri hægt að gera við því og allir hópar settu nokkra punkta á menti.com sem fer svo beint til KSÍ og munu þau vinna áfram með okkar punkta. Við vorum svo með tvo önnur umræðuefni og var það mótamál (rætt var um lotumót,hraðmót og helgarmót meðal annars) og annað (þar sem við máttum koma með eigin punkta um KSÍ). Þingið byrjað með að allir fengu gjafa poka sem innihélt KSÍ brúsa og bol.

Guðni forseti Íslands setti formlega þingið og hélt stutta ræðu og svo hélt formaður KSÍ hún Vanda ræðu líka. Við fengum heimsókn frá landslið fólki meðal annars Söndru markmanni íslenska landsliðsins og Elísu leikmann í íslenska landsliðsins og stráka frá U21 landsliðinu. Við fengum að skoða byggingu KSÍ og skoða búningsklefa, skrifstofu Vöndu og þjálfara herbergi. Í enda þingsins var dregið úr happdrætti sem fólk skráði sig í með að auglýsa þingið á instagram."

 

Það er mikilvægt fyrir Vestra að eiga fulltrúa á þingi sem þessu og vonumst við til að geta sent fleiri fulltrúa að ári. Þingið heppnaðist vel og var mikil ánægja með það. Það er frábært fyrir iðkendur að geta fengið að kynnast starfsemi Knattspyrnusambands Íslands betur og ekki skemmir það fyrir að fá að skoða aðstöðuna og hitta landsliðsfólkið okkar. 

Nánar