Miðherjinn sterki Nemanja Knezevic verður áfram með Vestra á komandi tímabili. Nemanja var einn besti leikmaður 1. deildar á síðasta tímabili en meiddist skömmu fyrir úrslitakeppnina og náði ekki að ljúka tímabilnu með Vestra.
NánarÞingeyringurinn knái Ágúst Angatýsson mun ekki leika með Vestra næstkomandi tímabil. Ágúst var einn af máttarstólpum liðsins á síðasta tímabili. Hann lék alls 17 leiki í deild og úrslitakeppni og skilaði í þeim 12.4 stigum og 8.1 frákasti að meðaltali í leik. Stjórn og þjálfarar Vestra vilja þakka Gústa fyrir hans framlag til félagsins og óskar honum alls hins besta.
Nánar
Hinn árlegi körfuboltadagur Vestra er haldinn í íþróttahúsinu Torfnesi í dag og hefst gleðin klukkan 18. Dagurinn markar upphaf vetrarstarfs körfunnar en æfingar hófust af fullum krafti á mánudag. Að venju eru það þjálfarar og leikmenn meistaraflokks sem standa fyrir ýmiss konar körfuboltasprelli í salnum, fulltrúar barna- og unglingaráðs kynna æfingatöfluna og svo verður slegið upp pylsupartíi áður en allir halda heim um kl. 19:30.
NánarKörfuknattleiksdeild Vestra hefur samið við Andre Hughes um að leika með liðinu á komandi tímabili. Andre er 204 sm hár, 104 kg fjölhæfur leikmaður sem getur leyst fleiri en eina stöðu á vellinum.
NánarMenntaskólinn á Ísafirði endurvekur nú í haust afreksíþróttasvið við skólann og er hlutur körfuboltans þar ánægjulega stór. Alls eru 27 nemendur úr fimm íþróttagreinum skráðir á brautina, þar af 12 iðkendur frá körfuknattleiksdeild Vestra. Framtak MÍ er lofsvert enda gefur sviðið nemendum tækifæri til að samræma betur afreksástundun í íþróttum og krefjandi nám í menntaskóla.
NánarÍ gær gekk Körfuknattleiksdeild Vestra frá nýjum þriggja ára samningi við Nebojsa Knezevic. Þetta eru mikil gleðitíðindi enda er vart hægt að hugsa sér betri liðsmann en þennan serbneska Vestfirðing sem hefur búið á Ísafirði undanfarin fjögur ár.
NánarLandslið U16 ára drengja í körfubolta æfir nú á Ísafirði þessa dagana en liðið er að búa sig undir Evrópumeistaramót U16 ára drengjalandsliða, sem fram fer í Sarajevo í Bosníu dagana 9-19. ágúst næstkomandi. Hópurinn kom akandi vestur í gærkvöldi og æfir fram á sunnudag, alls sex æfingar og einn æfingaleik. Aðstæður á Ísafirði eru hinar bestu og hafa Ísafjarðarbær og fyrirtæki í bænum greitt götu liðsins í hvítvetna.
NánarBakvörðurinn efnilegi Ingimar Aron Baldursson hefur samið við Vestra um að leika með liðinu á næsta keppnistímabili. Ingimar Aron lék stór hlutverk með liðinu á síðasta tímabili, var í byrjunarliðinu í 26 leikjum af 27, og skoraði 11,6 stig, tók 2,9 fráköst og gaf 2,9 stoðsendingar.
NánarAldrei hafa fleiri iðkendur verið skráðir í Körfuboltabúðir Vestra en þær hefjast í íþróttahúsinu á Torfnesi á morgun, þriðjudag. Búðunum lýkur með veglegri kvöldvöku á laugardagskvöld og gestir halda svo heim á sunnudag. Búðirnar fagna tíu ára afmæli í ár og eru stærstu búðir sinnar tegundar á landinu.
NánarNú er ljóst að Vestri þarf að sjá á eftir þremur lykilleikmönnum síðasta timabils en þeir Adam Smári Ólafsson, Björn Ásgeir Ásgeirsson og fyrirliðinn Nökkvi Harðarson hafa allir ákveðið að söðla um. Við þökkum þessum þremenningum kærlega fyrir framlag þeirra til félagsins. Allir hafa þeir skilað frábæru starfi og er mikil eftirsjá af þeim bæði innan vallar sem utan. Þessir ungu leikmenn hafa allir nýtt tækifæri sín hjá félaginu vel og vaxið mikið sem körfuboltamenn.
Nánar