Knattspyrna | 09.07.2011
BÍ/Bolungarvík hélt til Ólafsvíkur í gær til að taka á móti heimamönnum í Víking. Fyrir leikinn voru liðin í svipaðri stöðu um miðja deild og því var mikilvægt fyrir bæði lið að vinna leikinn og skilja við botnbaráttuna. Aðstæður voru sæmilegar í Ólafsvík, sól en töluverður vindur. Völlurinn var sléttur en þó töluvert harður.
BÍ/Bolungarvík stillti upp í 5-3-2 leikkerfi og var dagskipunin að bíða eftir Ólsurum sem vilja sjálfir liggja tilbaka og beita skyndisóknum. Byrjunarliðið var þannig skipað:
Nánar
Knattspyrna | 06.07.2011
BÍ/Bolungarvík hefur samið við suður-afríska miðjumanninn Nicholas Anthony Efstathiou. Nicholas er 22 ára gamall og kemur úr unglingaliði Ajax Cape Town. Nicholas kom til Reykjavíkur i gær og lenti á Ísafirði í morgun. Nicholas mun hitta liðsfélaga sýna í kvöld þegar að hann mætir á sína fyrstu æfingu kl 18:00 á Skeiðisvelli. Hann verður kominn með leikheimild þegar það opnast aftur fyrir félagaskipti þann 15.júlí.
Stjórn BÍ/Bolungarvíkur býður Nicholas velkominn og vonandi á hann eftir að láta ljós sitt skína í búningi félagsins. Hann klárlega styrkja liðið í þeirri baráttu sem við eigum fyrir höndum.
Aðrar fréttir af leikmannamálum eru að Goran Vujic mun væntanlega ekki vera meira með á þessum tímabili vegna meiðsla, þá er Óttar Kristinn Bjarnason einnig meiddur og Jónmundur Grétarsson er hættur.
Nánar
Knattspyrna | 05.07.2011
Þá eru búningarnir tilbúnir til afgreiðslu í Leggur og skel, frá og með miðvikudeginum 6.júlí. "Nýr styrktaraðili" kom óvænt fram þegar hefja átti prentun á búningunum í síðustu viku. Steiniðjan ehf. sem er eigandi Sólsteina, festi kaup á S.Helgason í síðustu viku. Og þ.a.l. verður S.Helgason framan á búningum yngri flokka félagsins.
Allir iðkendur sem hafa pantað sér búning, hafa fengið niðurgreiðslumiða frá félaginu. Hver iðkandi verður að afhenda miðann í versluninni til að fá búningin afhentan og einnig til að fá niðurgreiðsluna. Þeir iðkendur sem ekki hafa fengið niðurgreiðslumiða afhenta, geta nálgast þá á skrifstofu félagsins Vallarhúsinu, miðvikudaginn 6.júlí milli 10:00-12:00.
Nánar
Knattspyrna | 03.07.2011
BÍ/Bolungarvík 3 - 2 Þróttur 0-1 Guðfinnur Þórir Ómarsson ('1)
1-1 Nicholas Deverdics ('4)
2-1 Alexander Veigar Þórarinsson ('9)
3-1 Nicholas Deverdics ('65)
3-2 Sveinbjörn Jónasson ('66)
Brekkan við Torfnesvöll var þétt setin af bæði heimamönnum sem og þónokkrum Kötturum sem gerðu sér ferð vestur á leik BÍ/Bolungarvíkur og Þróttar. Í deildinni eru liðin á svipuðu róli og aðeins munar einu stigin á liðunum. Það er hins vegar ekki spurt um stöðu í deild þegar kemur að bikarkeppninni eins og bæði þessi lið sönnuðu í 16-liða úrslitunum þegar þau lögðu úrvalsdeildarliðin Fram og Breiðablik að velli.
Nánar
Knattspyrna | 01.07.2011
BÍ/Bolungarvík 0 - 1 Selfoss 0-1 Ibrahima N'Diaye ('38)
Sumarið lét loksins á sér kræla fyrir vestan í dag og aðstæður voru eins og best verður á kosið þegar BÍ/Bolungarvík tók á móti Selfyssingum. Þétt var setið í brekkunni á Torfnesvelli, góð stemmning og ánægjulegt hversu margir stuðningsmenn ferðuðust með gestaliðinu.
Nánar
Knattspyrna | 28.06.2011
BÍ/Bolungarvík og tölvu-og netþjónustufyrirtækið Snerpa á Ísafirði hafa gert með sér samstarfssamning til næstu þriggja ára. Snerpa er þá kominn í hóp fjölmargra fyrirtækja sem ætla að taka slaginn með liðinu næstu árin. Í kjölfar samstarfsins var vefur félagsins tekinn í gegn og er útkoman vægast sagt stórglæsileg.
Snerpa ehf. rekur alhliða tölvu- og netþjónustu. Starfsmenn Snerpu hafa m.a. sérhæft sig í vefforritun og hugbúnaðargerð sem byggir á fjarvinnslu og Internetstöðlum. Stór þáttur í starfsemi félagsins er rekstur á alhliða Internetþjónustu og nær þjónustusvæði Snerpu yfir allt landið og í mörgum tilfellum víðar. Snerpa hefur yfir að ráða einu af stærri víðnetskerfum landsins og rekur m.a. hnútpunkta í öllum þéttbýliskjörnum á Vestfjörðum. Snerpa hefur jafnframt mjög öflugar tengingar við Internetið um útlandagáttir Símans og OgVodafone og skiptistöð fyrir innanlandsumferð í Tæknigarði í Reykjavík (RIX).
Nánar