Fréttir - Knattspyrna

Frábærar fréttir

Knattspyrna | 14.12.2016

Þrír iðkendur Vestra knattspyrnu voru valinn á úrtaksæfingar í u-16 núna í desember. Fyrir viku fóru þeir Þórður Gunnar Hafþórsson og Þráinn Arnaldsson á æfingar í u-16 ára landsliðsúrtaki drengja og um liðna helgi fór Hafdís Bára Höskuldsdóttir í u-16 ára landsliðsúrtak stúlkna. Öll höfðu þau farið í stærri úrtaksverkefni í haust og voru valinn áfram af þeim. Að komast svona langt í valinu er frábært árangur þar sem gríðarlega margir iðkendur eru í knattspyrnumenginu. Öll eru þau að uppskera vel enda leggja þau gríðarlega mikið á sig og sinna íþrótta sinni af miklum heilindum og dugnaði og eru þau góð fyrirmynd fyrir yngri iðkendur.

Nánar

Jólamót knattspyrnudeildar

Knattspyrna | 09.12.2016
1 af 4

Um síðustu helgi var haldið jólamót knattspyrnudeildar Vestra. Yngstu flokkarnir spiluðu í Bolungarvík á laugardegi og eldri flokkar á sunnudegi á Ísafirði. Líkt og í fyrra fengu foreldrar að spreyta sig á móti krökkunum og er ómögulegt að segja hvor skemmtu sér betur foreldrar eða krakkarnir. Kaffi og smákökur voru í boði og fengu svo allir glaðning í lok móts. Frábær gleði í alla staði. Þökkum öllum kærlega fyrir komuna.

 
Nánar

Þráinn í landsliðsúrtaki

Knattspyrna | 11.10.2016
Þráinn í miðju ásamt félögum sínum Guðmundi og Þórði.
Þráinn í miðju ásamt félögum sínum Guðmundi og Þórði.

Þráinn Arnaldsson var í vikunni valinn á úrtaksmót U-17 ára. Þetta er frábær árangur hjá Þráni og heldur hann áfram að fá viðurkenningar erfiðisins því hann var einnig í úrtakshópi fyrir U-16 í fyrra. Þráinn er einn efnilegasti markmaður landslins í sínum aldursflokki. Til hamingju Þráinn.

Nánar

Aðalfundur knattspyrnudeildar Vestra 2016

Knattspyrna | 08.10.2016

Aðalstjórn knattspyrnudeildar Vestra boðar til aðalfundar deildarinnar laugardaginn 15.október í Vallarhúsinu Torfnesi kl 10:00.  Venjuleg aðalfundarstörf.

Nánar

Hæfileikamót KSÍ

Knattspyrna | 30.09.2016

Hæfileikamót KSÍ drengja fór fram um síðustu helgi. Þar áttum við okkar fulltrúa en Guðmundur Arnar Svavarsson var valinn til þátttöku. Guðmundur stóð sig mjög vel og var félaginu til sóma í leik sem og í framkomu.

Nánar

Vestri lagði Hörð í Vestfjarðabikarnum

Knattspyrna | 29.09.2016
Meistaraflokkur karla
Meistaraflokkur karla

Vestri lagði nágranna sína í Herði í Vestfjarðabikarnum í gær. Hörður komst tvisvar yfir í leiknum en Vestramenn náðu að jafna í bæði skiptin og var staðan 2 -2 eftir venjulegan leiktíma.

 

Nánar

Vestri og Hörður spila um Vestfjarðabikarinn

Knattspyrna | 28.09.2016
Torfnes
Torfnes

Bræður munu berjast á Torfnesvellinum á Ísafirði í dag þegar Vestri og Hörður spila til þrautar um Vestfjarðabikarinn í sjö manna bolta.

Nánar

Tap í lokaleik tímabilsins

Knattspyrna | 24.09.2016
Meistaraflokkur karla
Meistaraflokkur karla

Vestri tapaði fyrir Njarðvík, 2-3, í lokaleik sínum í 2. deildar karla á þessu ári á Torfnesvelli í dag. Fyrra mark Vestra var sjálfsmark frá Njarðvík á 9 mínútu en það seinna skoraði Sólon Breki Leifsson á 75 mínútu. Sigurmark Njarðvíkinga soraði Harrison Hanley á 87 mínútu og var það annað mark hans í leiknum.

Nánar

Lokaleikur knattspyrnuvertíðarinnar

Knattspyrna | 23.09.2016
Mynd: BB.is
Mynd: BB.is

Vestri mætir Njarðvík á Torfnesvellinum á Ísafirði á morgun í lokaleik 2. deildar Íslandsmóts karla. Vestri er í sjötta sæti deildarinnar með 29 stig, jafnmörg og Sindri á Hornafirði sem er reyndar með betra markahlutfall.

Nánar

Sex marka leikur á Torfnesi

Knattspyrna | 12.09.2016
Elmar Atli skorar annað mark Vestra. Mynd: BB.is
Elmar Atli skorar annað mark Vestra. Mynd: BB.is

Það var markasúpa á Torfnesvellinum í gær þegar Afturelding úr Mosfellsbæ lék við heimamenn í Vestra. Fyrri hálfleikur var tíðindalítill og þegar blásið var til leikhlés var staðan 0-0. Í seinni hálfleik brustu allar flóðgáttir og skildu liðin að lokum jöfn, 3-3.

Nánar